Dentineo í Gdansk · yfir 100 íslenskir sjúklingar á ári

Stærri tannviðgerðir á hagstæðu verði í Gdansk

Tannígræðslur, margar krónur, brýr og umfangsmeiri tannlæknameðferðir geta verið hagstæðari í Gdansk. Fáðu frítt fyrsta verðmat áður en þú ákveður hvort ferðin borgi sig.

100+ Yfir 100 Íslendingar árlega
IS Íslensk aðstoð
✓ Greitt beint til Dentineo
Verðmunur fer eftir meðferð og umfangi. Endanlegt verð fæst alltaf eftir mat Dentineo.
Tannlæknir hjá Dentineo í Gdansk
Gdansk Kíktu til tannlæknis og taktu nokkra frídaga í Gdansk í leiðinni.
Hvenær getur ferðin borgað sig?

Borgar sig fyrir stærri meðferðir

Ferð til Gdansk er ekki sjálfkrafa hagkvæmasta lausnin fyrir eina einfalda meðferð. Kosturinn verður áhugaverðari þegar um er að ræða stærra eða samsett verk þar sem margar aðgerðir eru skipulagðar saman.

1

Tannígræðslur

Þegar eina eða fleiri tennur vantar og meðferðin felur í sér ígræðslu, lokafrágang og krónu.

2

Margar krónur

Þegar þarf að endurbyggja fleiri en eina tönn getur heildarverðið skipt mun meira máli en við staka krónu.

3

Brýr og fleiri tennur

Samsettar lausnir með brúm, ígræðslum eða fleiri krónum henta oft betur í skipulagða tannlæknaferð.

4

Umfangsmikil endurbygging

Þegar þarf að endurbyggja stóran hluta bits eða bros getur verið sérstaklega gagnlegt að fá heildstætt verðmat.

Raunverulegur árangur

Fyrir og eftir

Dragðu sleðann til að bera saman stöðuna fyrir meðferð og niðurstöðuna eftir meðferð.

↔
FYRIR EFTIR
↔
FYRIR EFTIR
↔
FYRIR EFTIR
Raunveruleg dæmi frá Dentineo. Niðurstöður eru einstaklingsbundnar og ráðast af ástandi tanna og þeirri meðferð sem valin er.
Adam Bielawski
Adam Bielawski Eigandi tannlæknastofunnar Dentineo
Fagfólk og aðstaða

Reyndir sérfræðingar

Dentineo er nútímaleg tannlæknastofa þar sem tannlæknar með ólíka sérhæfingu vinna saman að greiningu og meðferð. Stofan notar meðal annars stafræna myndgreiningu, CBCT og tannsmásjár.

✓ Yfir 100 íslenskir sjúklingar á ári
✓ CBCT og stafræn greining
✓ Tannsmásjár við nákvæmar meðferðir
✓ Tannlæknar með ólíka sérhæfingu
Sjá hvernig ferlið gengur fyrir sig hjá tannlækni í Gdansk →
Stafræn greining hjá Dentineo Stafræn greining
Tannsmásjá hjá Dentineo Tannsmásjár
Tannlæknar að störfum hjá Dentineo Faglegt teymi
Meðferðaraðstaða hjá Dentineo Nútímaleg aðstaða
Teymi Dentineo Teymi Dentineo
Aðstaðan hjá Dentineo Aðstaðan hjá Dentineo
Bjarni Jón Sveinsson
▶
Horfa á viðtalið
Reynsla íslensks sjúklings

Bjarni Jón Sveinsson segir frá sinni reynslu

Bjarni Jón var lengi búinn að leita lausnar sinna mála. Tennurnar voru orðnar dökkar og slitnar og úrræðin sem hann hafði skoðað voru dýr og tímafrek. Hjá Dentineo fékk hann fjórar tannígræðslur í efri kjálka og sex í neðri kjálka. Hann lýsir meðferðinni og þjónustunni sem mjög ánægjulegri og fagmannlegri og segist ánægður með lokaárangurinn.

„Ég myndi mæla með þessari stofu. Þjónustan hefur verið mjög ánægjuleg og góð og allt verið virkilega fagmannlegt.“
— Bjarni Jón Sveinsson

Bjarni Jón fyrir og eftir meðferð

Árangurinn sést vel á myndunum. Bjarni Jón fór í umfangsmikla meðferð þar sem meðal annars voru settar tannígræðslur í bæði efri og neðri kjálka.

Vantar margar tennur? Sjáðu hvar er best að byrja →
Fleiri reynslusögur

Hvað segja fleiri sjúklingar?

Reynslan er auðvitað einstaklingsbundin, en hér eru nokkrar raddir fólks sem hefur leitað til Dentineo.

“
„Takk fyrir frábæra þjónustu. Starfsfólkið var einstaklega indælt og fagmannlegt. Nú brosum við breitt! Við komum aftur.“
María og Arnór, Íslandi
„Meðferðin mín var flókin og tók tíma, en ég er mjög þakklát fyrir brosið sem ég er með í dag.“
— Beate, Noregi
„Mjög hæfur, hjálpsamur og kurteis tannlæknir. Meðferðin fór fram strax og samskiptin voru á mjög góðri ensku.“
— Stefanie, Þýskalandi
Verð

Dæmi úr verðskrá Dentineo

Verðdæmin hér sýna hvernig einstaka liðir í meðferð eru verðlagðir. Við tannígræðslu er mikilvægt að horfa á allan pakkann: sjálfa ígræðsluna, opnun og græðsluskrúfu og loks krónuna. Viðbótarmeðferðir, myndgreining eða beinuppbygging geta bæst við ef þörf er á.

Sjá fleiri verð og verðdæmi hjá tannlækni í Póllandi →
Fullkeramikkróna / postulínsskel
um 99.000 kr.
3.000 PLN
Verð fyrir eina fullkeramikkrónu eða postulínsskel samkvæmt verðskrá Dentineo.
Ísetning tannígræðslu
um 129.000 kr.
3.900 PLN
Sjálf tannígræðslan. Króna og lokafrágangur eru verðlögð sérstaklega.
Fullbúin BASIC tannígræðslutönn
um 246.000 kr.
7.450 PLN
Dæmi: ígræðsla 3.900 PLN + opnun/græðsluskrúfa 450 PLN + BASIC króna 3.100 PLN.
Fullbúin Straumann tannígræðslutönn
um 347.000 kr.
10.500 PLN
Dæmi: Straumann ígræðsla 5.000 PLN + opnun/græðsluskrúfa 500 PLN + Straumann króna 5.000 PLN.
Það er heildarverðið sem skiptir máli.Við eina krónu getur verðmunurinn verið takmarkaður þegar ferðakostnaður er tekinn með. Þegar þarf margar krónur, ígræðslur, brýr eða umfangsmeiri endurbyggingu getur heildarmunurinn orðið mun mikilvægari.
Verðin miðast við opinbera verðskrá Dentineo í september 2026 og eru eingöngu til viðmiðunar, ekki bindandi tilboð. Íslenskar fjárhæðir eru reiknaðar miðað við 1 PLN = 33 kr. Gengi, verðskrá og umfang meðferðar geta breyst. Endanlegt verð fæst eftir skoðun og meðferðaráætlun Dentineo.
Gdansk

Njóttu Gdansk í leiðinni

Gdansk er falleg og lífleg borg með frábæru mannlífi, fjölbreyttum verslunum, notalegum kaffihúsum og einstaklega góðu úrvali veitingastaða. Gamli bærinn og svæðið við ána eru skemmtileg að rölta um og auðvelt er að sameina tannlæknameðferðina við nokkra notalega daga í borginni.

Hvernig er best að komast til Gdansk?

Wizz Air flýgur reglulega beint milli Keflavíkur og Gdansk. Icelandair hóf vetraráætlunarflug til Gdansk í september 2026.

Flugáætlanir geta breyst, svo alltaf er rétt að kanna dagsetningar hjá flugfélögunum áður en ferð er bókuð.
Sjá frá fyrstu fyrirspurn til meðferðar í Gdansk →
Gdansk
Spurt & svarað

Algengar spurningar

Sjá allar spurningar og svör →
Hvernig fæ ég frítt verðmat?
Sendu stutta lýsingu á því sem þú vilt láta skoða og mynd af tönnunum ef þú getur. Venjulegar símamyndir duga oft til að byrja. Dentineo getur þá gefið fyrstu hugmynd um mögulega meðferð og kostnað.
Hvernig er best að komast til Gdansk?
Wizz Air flýgur reglulega beint milli Keflavíkur og Gdansk. Icelandair hóf vetraráætlunarflug til Gdansk í september 2026. Flugáætlanir breytast milli tímabila, svo best er að kanna dagsetningar hjá flugfélögunum áður en ferð er bókuð.
Þarf ég að vita hvaða meðferð ég þarf?
Nei. Segðu einfaldlega hvað vantar, hvað angrar þig eða hverju þú vilt breyta. Tannlæknar Dentineo meta síðan hvaða lausnir koma helst til greina.
Hvaða meðferðir henta best fólki frá Íslandi?
Tannígræðslur, margar krónur, brýr, postulínsskeljar og aðrar umfangsmeiri meðferðir henta oft vel fyrir fólk sem ferðast til Gdansk í meðferð. Hversu margar ferðir þarf ræðst af meðferðaráætlun hvers og eins.
Er hægt að fara í tannréttingu hjá Dentineo?
Já. Dentineo býður meðal annars upp á glærar tannréttingaskinnur. Slík meðferð krefst þó reglulegs eftirlits, oft á tveggja til þriggja mánaða fresti, og er því ekki helsta meðferðin sem Dentineo mælir með fyrir erlenda sjúklinga.
Hvar greiði ég fyrir meðferðina?
Samningur um tannlæknameðferð er gerður beint við Dentineo og greiðsla fyrir meðferðina fer beint til Dentineo.
Geta Sjúkratryggingar tekið þátt í kostnaði?
Í ákveðnum tilvikum geta Sjúkratryggingar tekið þátt í tannlæknakostnaði vegna meðferðar í Póllandi, meðal annars hjá sumum lífeyrisþegum. Rétturinn fer eftir tegund meðferðar og stöðu viðkomandi og þarf því að kanna hann sérstaklega.
Kannaðu möguleikana

Fáðu frítt verðmat

Sendu stutta lýsingu á því sem þarf að gera og mynd af tönnunum ef þú getur. Þú færð fyrstu hugmynd um mögulega meðferð, kostnað og næstu skref — og getur þá metið hvort tannlæknaferð til Gdansk henti þér.

✓ Frítt fyrsta mat ✓ Íslensk aðstoð ✓ Engin skuldbinding
Starfsmaður Dentineo